Henny María ...

Friday, August 18, 2006

MMM (menningarnótt, magni og marglyttur)

Já þá er komið að hinni árlegu menningarnótt á morgun. Við erum svo heppin að vera á leiðinni í tvöfalt þrítugsafmæli kl 17 á morgun í miðbænum og svo verður væntanlega kíkkað í bæinn. Addi er allavega að spila á prikinu þannig að maður kíkir örugglega þangað og dansar af sér rassinn í smá stund.
Hvað var annars málið með hann magna síðast, djös...rugl að hann lenti í bottom 3, þá verður maður að byrja að kjósa aftur, engin spurning. Já þetta var ansi intense hjá honum í creep, dilana bara skælandi og allt, úff. Allavega tók hann Lukas alveg í nösina, hans creep var sko ekkert spes. Hann Lukas er alltaf svona soldið "constipated" í framan blessaður drengurinn en supernova gaukarnir eru alveg að fíla kallinn. Þeir var samt alveg á tæru að þeir voru ekki á leiðinni að sparka magna heim.
Vorum í sambandi við samstarfskonu Palla sem var í húsinu sem við verðum í á Spáni. Hún sagði þetta vera frábært, allar græjur til staðar, stutt á ströndina og allt hræbillegt. Ekki slæmt. Að vísu var maðurinn hennar stunginn af marglyttu og fékk sýkingu og alles. Hann klikkaði á að láta einhvern pissa á þetta eins og krakkarnir í friends gerðu um árið. Þetta er sko ekkert grín að fá svona bit, marglyttur eru stórhættuleg kvikindi, einhver tegundin er með eitruðstu dýrum heims ! Maður verður aldeilis að passa sig, það er alveg á hreinu.

1 Comments:

  • Hæ!
    Talandi um marglyttur þá var ég niðri á strönd hérna um daginn og sá alveg fullt af marglyttum ofan í sjónum og fólk var bara syndandi eins og ekkert væri innan um þær ég var ekki alveg að skilja ég er skíthrædd við þetta. En allavega ég lét pabba veiða eina og við létum hana þorna og þær verða mjög fyndnar þegar þær þorna hún varð svona hörð eins og gel eða silikon eða e-ð. Vildi bara deila þessu með þér hehe:)
    miss you
    Ragnhildur

    By Anonymous Anonymous, at 3:46 PM  

Post a Comment

<< Home